541372_630890390266926_1587735193_n

Átta daga útivistaferð, á sumarleyfisstað sem ítalir elska við Liguria-flóann.  Þar er hjólað er við vestanverðan flóann upp og niður hæðir og um dali sem eru umvafðir miðjarðarhafs gróðri.  Þar eru vinsælustu klifurveggir Evrópu innan seilingar og urmul  fallegra hjólaleiða.  Gist er á hóteli við ströndina í Finale.  Eftir þrjá hjóladaga flytjum við okkur frá sandströndunum vestanmegin yfir að klettaströndunum austanmegin. Við förum í gönguferðir um Cinque Terre (þorpin fimm) sem eru á heimsminjaskrá Unesco.   Þorpin eru þekkt fyrir  sérstaka staðsetningu því þau hanga á klettabrúnum með himinbláan sjóinn fyrir neðan og  landslagið er stórkostlegt.

DAGSKRÁ

Dagur 1.

Ferðadagur – flogið til Mílanó og þaðan ekið til Finale Liguria, Rútferðin tekur um 2,5 tíma.

Gistum  í fjórar nætur á þægilegu hóteli við sjóinn

 

Dagur 2:

Eftir morgunmat hjólum við til  Borgio Verezzi og skoðum  sérkennilega lagaðan dropa-/kalksteins  helli sem búið var í við upphaf siðmenningar. Verezzi  er miðaldar borg, byggð upp á hæð, með ótrúlegu útsýni til sjávar. Hér sjást ennþá upprunalegu strætin og steinbyggðu húsin, einnig falleg kirkja frá 11. öld. Á bakaleiðinni hjólum við undir „Capra Zappa” hamraveggnum 3. tíma hjólatúr, en við á ferðinni allan daginn. Kvöldverður á Hóteli

Dagur 3.

Eftir morgunmat hjólum við upp Ponci dalinn sérstaklega til að skoða brú frá tímum rómverja og þorpið Boragni sem er falið í skóginum við snarbratta klifurveggi. Ef hópurinn er til í létt offroad,  förum við að Pian Marino, sem er fallegur staðurí fjöllunum og að hinu þekkta Final Borgo sem er mjög gamalt og fallegt borgarvirki.

3-4 tíma hjólatúr. Hádegismatur á Agriturismo. Kvöldverður (ekki innifalin

 IMG_0065

Dagur 4.

Eftir morgunmat hjólum við til  San Bernardino í fallegu umhverfi með gömlum byggingum og skógarrjóðrum. Við njótum útsýnis til sjávar og sveitakyrrðarinnar og litlu kaffihúsanna á leið til Noli sem er gömul rómverskt höfn í fallegu umhverfi, en þar borðum við hádegismat og göngum að þorpsturninum.

IMG_8293

3 . 4. tíma hjólatúr. En á heimleiðinni stoppum við á lítilli falinni strönd og böðum okkur í tærum sjónum.

Kvöldverður (ekki innifalin) á það sem þeir kalla Agriturismo (Beint frá býli/ eða úr héraði).

Marco - guidinn okkar

Dagur 5. Eftir morgunmat skráum við okkur út af hóteli og höldum í klukkutíma rútuferð til Genova, gamallar hafnarborgar, þar sem að við stoppum áður en lengra er haldið  og göngum um  gamlar þröngar götur og skoðum byggingar frá 16 og 17 öld. Smá verslunnartími/kráarstopp  áður en rútuferðin heldur áfram yfir á austanverðan Liguriaflóann að hóteli í  Santa Margherita Ligure þar sem að við gistum næstu þrjár nætur. Santa Margherita  er rétt við Portofino sem er í framhaldi af Cinque Terre. Kvöldverður á hóteli

10360188_572507682880468_4320177412540888786_n

Dagur 6. Eftir morgunverð tökum við lest, sem er besta leiðin til að komast að Cinque Terre þorpunum. Við heimsækjum þorpið Corniglia, með sína litlu strönd og húsin eins og hangandi á milli klettanna. Við göngum eftir litlum stígum á milli einhverra þorpa, líklega frá Vernazza til  Monterosso ( fer eftir hvaða stígar eru opnir). Ótrúleg upplifun að sjá þessi sérstöku klettaþorpum sem eru á heimsminjaskrá með himinbláan sjóinn fyrir neðan en fólk fær borgað fyrri að búa þar og viðhalda gamalli búsetuhefð. Göngum í 4-5 tíma en gerum ráð fyrir heilum degi til að upplifa sem mest og slappa af inn á milli. Tökum lestina til baka til Santa Margherita. Kvöldverður á hóteli

Dagur 7. Eftir morgunverð förum við í stutta bátsferð og siglum til Portofino sem er eftirsóttur staður fyrir flottar skútur og sumarhús fræga fólksins.  Síðan göngum við einstaklega skemmtilega leið frá Portofino til Camogli. Við stefnum á að ná fyrir hádegi að gamla klausturbænum  San Fruttuoso sem er við einangraða strönd inn í miðjum sjávarþjóðgarði Portofino. Við höldum áfram til Camogli og njótum sólsetursins yfir snarli áður en við höldum til Santa Margherita með lest. Göngum í 5 tíma en gerum ráð fyrir öllum deginum.Kvöldverður í Camogli eða í Santa Margherita-ekki innifalið.

1619132_572507599547143_3201800754530988816_n

Dagur 8.   Ferðadagur – þriggja tíma rútuferð til Malpensa flugvallar í Mílanó og komum heim kát og glöð.

Hitinn er um   24 – 28°C, við Liguria á haustin og vorin ( maí/júni og september/október – fullkomið útivistaveður.

Verðið   er breytilegt -fer eftir fjölda og  hvenær ársins er farðið en  er ca  €1500 (Evrur)+ flug  miðast við 12-14  manns með íslenskum hópstjóra.

Innifalið í verði: Rútuferðir til og frá flugvelli, einnig á milli Finale og Santa Margherita, þriggja stjörnu hótel, 7 nætur í tveggjamanna herbergjum með morgunverði og kvöldverðir 4 kvöld, leiga á hjólum í 3 daga, aðgangseyrir í helli, lestarfargjöld í gönguferðunum um þorpin fimm,  ítalskur enskumælandi jarðfræðimenntaður leiðsögumaður, íslenskur hópstjóri.

Ekki innifalið: Hádegisverðir, viljum getað haft frjálslegan hátt á því og notið þess sem er í boði  á hverjum staðog þá jafnvel picnik. Kvöldverðir í 3 kvöld  (pizzustaður er alltaf ómissandi hluti af Ítalíuferð)

Upplýsingar gefur Alda 8613436 aldpet@centrum.is og Helga 8982026 italiuferdir@hive.is

 

 

 

 

 

Leave a Reply